Upplýsingar

Góðir Íslendingar

Spilið sem einnig er uppskriftabók er loksins komið aftur bæði á íslensku og á ensku. Hægt er að spila Veiðimann þar sem í stað þess að safna tvistum eða drottningum, þá safnar maður rækjum og löxum.

Á spilunum er uppskrift og stór mynd af fiski. Nafn hans er bæði á íslensku og latínu. Á spöðum spilsins eru uppskriftir frá nokkrum kokkum landsins, á tíglum eru uppskriftir frá fyrirtækjum tengdum matvæla- eða fiskiðnaði, á laufum eru uppskriftir frá Íslendingum almennt og á hjörtum eru heilsusamlegar uppskriftir.

Það er von mín að þessi spila-uppskriftabók verði til gagns og gamans. Krakkar læra nöfn fiskanna og vonandi hvetur spilið til aukinnar fiskneyslu sem kemur öllum til góða.

kveðja Stefán Pétur Sólveigarson





Leikreglur

Spilin eru stokkuð og dreift um borðið með bakhliðina upp. Spilamenn draga sér fimm spil hver. Spilið gengur út á að fá sem flestar fiskitorfur (samstæður) t.d. 4 rækjur eða 4 þorska. Sá sem byrjar velur sér einhverja fisktegund sem hann hefur á hendi og spyr einhvern annan hvort hann eigi þá tegund. Ef sá á spilið, eitt eða fleiri, verður hann að láta þau öll af hendi til spyrjandans sem má þá velja sér einhverja aðra tegund og annan leikmann, þar til sá sem svarar á ekki tegundina. Þá segir hann veiddu og spyrillinn dregur sér spil af borðinu. Dragi hann spilið sem spurt var um, má hann spyrja aftur. Annars er röðin komin að þeim sem situr honum á vinstri hönd að spyrja. Þegar keppandi er kominn með fiskitorfu, þ.e.a.s. 4 spil af sömu tegund, er hún lögð niður á hvolf og er þá ein torfa. Spilinu er lokið þegar allir fiskarnir eru komnir í torfur og vinnur sá sem hefur flestar.


Uppskriftir

Allar uppskriftir í Veiðimann eru miðaðar við 4 nema annað sé tekið fram. Undir hverri uppskrift er nafn þess sem gaf eða benti á uppskriftina. Á hjörtunum eru frekar hollar uppskriftir, á spöðunum eru uppskriftir frá kokkum, á tíglum eru uppskriftir víða að og á laufunum eru frekar einfaldar uppskriftir sem miðaðar eru við fjölskyldur. Það er sannarlega von mín að þið getið haft bæði gagn og gaman af Veiðimann.




Verslanir

Reykjavík
Dogma, Smáralind
Epal
Ísbjörninn, Laugarvegi
Hagkaup
Minja, Skólavörðustíg
Mýrin, Kringlunni
Víkin sjóminjasafn
Þjóðminjasafnið - safnbúð

Akureyri
Fákasport
Hrím hönnunarhús
Pottar og prik

Borgarnes
Landnámssetrið

Egilsstaðir
Hús handanna

Mývatn
Dyngjan handverkshús

Stykkishólmur
Sjávarborg

Varmahlíð
Kaupfélag Skagfirðinga



Pantanir

Stefán Pétur 8610057
panta(hjá)solson.is