|
|
Upplýsingar
Kæru vinir,
loksins loksins er hið margumbeðna spil, Stóðhestaspilið,
að koma til landsins. fyrst um sinn mun einungis vera hægt
að fá Stóðhestaspilið á landsmóti hestamanna á Hellu nú í sumar.
Í framhaldi af því mun það fást í verslunum víða um land.
Stóðhestspilið svipar um margt til Hrútaspilsins. En hér er
að sjálfsögðu keppt um eiginleika íslenska hestsins
Á hverju spili er mynd af stóðhesti, nafn hans og ýmsar upplýsingar
er varða líkamsburði, byggingu, gangtegundir sem og aðra eiginleika hans.
Einnig er hægt að spila venjuleg spil með Stóðhestaspilinu og því er
það tilvalin gjöf til hestaáhugamanna sem og annarra.
|
|
|
|
Leikreglur
Spilin eru stokkuð og síðan deilt jafnt á þátttakendur.
Hver heldur á sínum spilum þannig að hann sér aðeins efsta hestinn
sinn og enginn sér hesta annarra. Sá sem er á vinstri hönd gjafara
byrjar spilið á því að rýna í og reyna að átta sig á því hverjir séu
bestu eiginleikar hestsins á spilinu hans, t.d. stangarmál, og segir hinum.
Sá sem hefur þann hest sem hefur hæstu einkunn fyrir stangarmálið vinnur og
fær efstu spil allra leikmanna. Ef tveir eða fleiri eru með sömu tölu eru
hestarnir lagðir á borðið og næstu teknir eins fyrir nema nú keppa aðeins
þeir sem höfðu efstu tölurnar. Þessu er haldið áfram þar til einn vinnur og
fær hann þá allt stóðið (hestana) í pottinum.
|
|
|
|
Verslanir
Reykjavík
Dogma, Smáralind
Epal
Ísbjörninn, Laugarvegi
Hagkaup
Minja, Skólavörðustíg
Mýrin, Kringlunni
Víkin sjóminjasafn
Þjóðminjasafnið - safnbúð
Akureyri
Fákasport
Borgarnes
Landnámssetrið
Egilsstaðir
Hús handanna
Mývatn
Dyngjan handverkshús
Stykkishólmur
Sjávarborg
Varmahlíð
Kaupfélag Skagfirðinga
Pantanir
Stefán Pétur 8610057
panta(hjá)solson.is
|
|
|