|
|
Upplýsingar
Jólakötturinn spilast eins og Svarti Pétur. Markmið spilsins er að enda ekki í Jólakettinum. Í stokknum eru
tvö spil með hverjum jólasveini, eitt spil með Jólakettinum og regluspil á íslensku og ensku.

Búningar jólasveinana eru byggðir á hugmyndavinnu Kristínar Sigðurðardóttur.

|
|
|
|
Leikreglur
Jólakötturinn spilast eins og Svarti Pétur:
Markmið spilsins er að enda ekki í Jólakettinum, sem sagt, ekki með jólaköttinn í enda spilsins því sá sem lendir í því tapar en
allir hinir vinna. Í upphafi eru öll spilin í bunkanum gefin, eitt í einu. Ekki skiptir neinu máli þó fólk fái mismörg spil á hendi,
enda erum við öll óttalegir jólasveinar. Hver og einn raðar sínum jólasveinunum í samstæður (tveir eins), leggur samstæðurnar í
hrúgu á borðið en heldur stöku jólasveinunum eftir...og jólakettinum ef hann var svo óheppinn.
Spilarinn á vinstri hönd við þann sem gaf, byrjar. Hann dregur eitt spil af þeim sem gaf. Ef spilið sem hann dregur myndar
samstæðu við spil sem hann hefur nú þegar á hendi, má hann kasta samstæðunni í hrúguna. Þá er komið að næsta manni til vinstri
við þann sem var að draga og svona gengur spilið, koll af kolli. Þegar spilari hefur losað sig við öll spilin sín hefur hann
lokið sinni þátttöku en hinir halda áfram þar til einn spilari er eftir og hann fer að sjálfsögðu í Jólaköttinn.
|
|
|
|
Verslanir
Reykjavík
Dogma, Smáralind
Epal í Hörpu
Ísbjörninn, Laugarvegi
Minja, Skólavörðustíg
Mýrin, Kringlunni
Víkin sjóminjasafn
Þjóðminjasafnið - safnbúð
Akureyri
Fákasport
Pottar og prik
Mývatn
Dyngjan handverkshús
Pantanir
Stefán Pétur 8610057
panta(hjá)solson.is
|
|
|