|
|
Upplýsingar

Kæru vinir,
út er komið nýtt Hrútaspil. Spilið er á leið í verslanir um land
allt og ætti að vera í öllum betri verslunum snemma í desember.
Hrútaspilið byggist á því að keppa um
eiginleika íslenska hrútsins.
Á hverju spili er mynd af hrút, nafn hans og ýmsar
upplýsingar sem varða útlit,
líkamsburði og aðra eiginleika hans.
Hverjum þykir sinn fugl fagur og það á líka
við um hrúta, en þeir geta verið hyrndir,
kollóttir, stuttfættir, langir, gulir, kubbslaga, með
útstæð horn og svona mætti lengi telja.
Einnig er hægt að spila venjuleg spil með Hrútaspilunum og
því er Hrútaspilið tilvalin
tækifærisgjöf.
Hrútabræður.
|
|
|
|
Leikreglur
Markmið spilsins er að ná öllum hrútunum af andstæðingnum.
Hrútaspilin eru stokkuð og síðan deilt jafnt á þátttakendur.
Hver heldur á sínum spilum þannig að hann sér aðeins efsta hrútinn
sinn og enginn sér hrút annarra. Sá sem er á vinstri hönd gjafara byrjar spilið
á því að rýna í og reyna að átta sig á því
hverjir séu bestu eiginleikar hrútsins á spilinu hans, t.d. ull, og segir hinum. Sá
sem hefur
þann hrút sem hefur hæstu einkunn fyrir ullina vinnur og fær efstu spil allra leikmanna.
Ef tveir eða fleiri eru með sömu tölu eru hrútarnir lagðir á borðið og
næstu teknir eins fyrir nema nú keppa aðeins þeir sem höfðu efstu tölurnar.
Þessu er haldið áfram þar til einn vinnur og fær hann þá alla
hrútana
í pottinum.
Eiginleikar hrútana eru útskýrðir með myndum:

|
|
|
|
Verslanir
Reykjavík
Dogma, Smáralind
Epal
Ísbjörninn, Laugarvegi
Hagkaup
Minja, Skólavörðustíg
Mýrin, Kringlunni
Víkin sjóminjasafn
Þjóðminjasafnið - safnbúð
Akureyri
Fákasport
Borgarnes
Landnámssetrið
Egilsstaðir
Hús handanna
Mývatn
Dyngjan handverkshús
Stykkishólmur
Sjávarborg
Varmahlíð
Kaupfélag Skagfirðinga
Pantanir
Stefán Pétur 8610057
panta(hjá)solson.is
|
|
|