|
|
Upplýsingar

Bóndinn er bæði spilastokkur og uppskriftabók. Spilið inniheldur 55 gómsætar uppskriftir og myndir af helstu afurðum
Íslenskra bænda, teiknaðar af Rán Flygenring. Hægt er að spila veiðimannsútgáfu af spilinu með því að safna samstæðum.
Áttu svín? Áttu Tómat?
Uppskriftir:
Allar uppskriftir í Bóndanum eru aðalréttir og miðaðar við 4 nema annað sé tekið fram. Undir hverri uppskrift er nafn þess
sem gaf eða benti á uppskriftina. Á hjörtunum eru frekar hollar uppskriftir, á spöðunum eru uppskriftir bænda, á tíglum eru
spariuppskriftir og á laufunum eru fjölskylduvænar uppskriftir miðaðar við krakka.
|
|
|
|
Leikreglur
Svona á að spila Bóndann:
Spilin eru stokkuð og dreift um borðið með bakhliðina upp. Spilamenn draga sér fimm spil hver. Spilið gengur út á að fá sem
flestar samstæður, t.d. 4 tómata eða 4 svín. Sá sem byrjar velur sér einhverja dýra- eða grænmetistegund sem hann hefur
á hendi og spyr einhvern annan hvort hann eigi þá tegund. Ef sá á spilið, eitt eða fleiri, verður hann að láta þau öll
af hendi til spyrjandans sem þá má veljasér einhverja aðra tegund og annan leikmann, þar til sá sem svarar á ekki tegundina.
Sá hinn sami segir „veiddu“ og spyrillinn dregur sér spil af borðinu. Dragi hann spilið sem spurt var um, má hann spyrja aftur.
Annars er röðin komin að þeim sem situr honum á vinstri hönd að spyrja. Þegar keppandi er kominn með samstæðu, þ.e.a.s. 4 spil
af sömu tegund, er hún lögð niður á hvolf og er þá einn slagur. Spilinu er lokið þegar öll dýrin og allt grænmetið er komið í
samstæður og vinnur sá sem hefur flesta slagi.
|
|
|
|
Verslanir
Reykjavík
Dogma, Smáralind
Epal
Ísbjörninn, Laugarvegi
Minja, Skólavörðustíg
Mýrin, Kringlunni
Víkin sjóminjasafn
Þjóðminjasafnið - safnbúð
Akureyri
Fákasport
Hrím hönnunarhús
Pottar og prik
Borgarnes
Landnámssetrið
Egilsstaðir
Hús handanna
Mývatn
Dyngjan handverkshús
Varmahlíð
Kaupfélag Skagfirðinga
Pantanir
Stefán Pétur 8610057
panta(hjá)solson.is
|
|
|